<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, september 30, 2003

Yndisleg heimavinna frammundan... Ég verð að koma með 10 hugmyndir af kvikmyndahandritum og gera svona "logline" sem er basicly sagan sögð í tveimur setningum... T.d. væri logline "Lítil geimvera verður strandaglópa í smábæ. Hann vingast við dreng á meðan ríkið er að leyta að henni." Þetta væri logline fyrir kvikmyndina E.T.
Ég ætla að nota nokkrar hugmyndir sem ég er byrjaður að gera handrit um en svo ætla ég að koma með fullt af ferskum hugmyndum... Heilinn á mér er moldríkur hugmyndabanki með góða vexti og endalausann yfirdrátt... Spurning hvort að einhverir samnemendur mínir þurfi að taka lán úr honum til að klára verkefnið...
Þvílíkur leiksigur... Ég stóð mig alveg afbragðs vel... Ég lékk vísindamann og má ég til með að segja að þið fynduð ekki vísindamannalegri vísindamann þó þið mynduð leyta í vísindamannalegu búðinni... Ég tók nokkrar myndir af stúdeóinu og stjórnherberginu bak við... Ég þarf að fylla á heila filmu sem
eg tók með í Montreal þannig að eftir nokkra daga fáiði myndir af skólanum líka... Þær eru teknar á einnota myndavél og verða því gæðin ekkert spes en vonandi verður innihaldið áhugavert...
Ég er kominn með einkunn fyrir banana myndirnar... Ég fékk 90% og var það hæst af öllum í bekknum... Sko mig... Að vísu þurfti engin að gera þetta þrisvar en það er auka atriði...
Jæja, var að koma heim... Ég var að hjálpa skólafélaga mínum að smíða sviðsmynd fyrir auglýsinguna sem hann á að gera á morgun... Ég hef sem betur fer ennþá tvær vikur til að undirbúa mig... Ég er eftir að vaka aðeins meira... ennþá eftir að læra línunar fyrir auglýsinguna á morgun...
Svo fékk ég skilaboð frá Lindy frænda, hann bað mig um að syngja fyrir sig "Stóð Ég Út Í Tunglsljósi" inná talhólfið sitt sem ég gerði... hann þarf nefnilega að syngja tvö íslensk lög á morgunn í sjónvarpinu... Allir eru sofandi hér í kringum mig og ég er gaulandi íslensk lög í símann... Svei...!
Anyway... áfram heldur vinnan...
Jæja, var að koma heim... Ég var að hjálpa skólafélaga mínum að smíða sviðsmynd fyrir auglýsinguna sem hann á að gera á morgun... Ég hef sem betur fer ennþá tvær vikur til að undirbúa mig... Ég á samt eftir að vaka aðeins meira og læra línurnar fyrir auglýsinguna á morgun...
Svo fékk ég skilaboð frá Lindy frænda, hann bað mig um að syngja fyrir sig "Stóð Ég Út Í Tunglsljósi" inná talhólfið sitt sem ég gerði... hann þarf nefnilega að syngja tvö íslensk lög á morgunn í sjónvarpinu... Allir eru sofandi hér í kringum mig og ég er gaulandi íslensk lög í símann... Svei...!
Anyway... áfram heldur vinnan...

mánudagur, september 29, 2003

Montreal segiði... Hvar skal byrja... Strax á föstudag eftir skóla kemur Lindy frændi minn á heimavistina á geðveikum bíl til að keyra til Toronto... 260 hestöfl brokkandi undir vélahlífinni... Keyrslan var silkimjúk og greið leið allan tímann... Að vísu voru stundum tveir trukkar sem lokuðu báðum akreinunum og hægðu þannig á umferðinni en Lindy frændi sagði mér að um leið og trukkanir vissu af lögreglu í umhverfinu þá gera þeira þetta til að hægja á allri umferð svo engin fá sektir... Um leið og löggan er farinn þá opna þeir leiðina aftur... Snilld! Við komum svo í borgina og keyrum um gatnakerfi sem virðist hafa verið hannað af manneskju með Etch-a-Sketch og flogakast... Svo er líka meira mál að finna bílastæði í borginni heldur en að lenda þyrlu á 10 hæða spilaborg... en það hafðist loksins og við komumst á fyrsta áfangastað... Lindy dró mig til Montreal því það var tónlistarhátíð í gangi og hann þekkti skipuleggjandann... Við fengum því strax All Access V.I.P. passa inná alla tónleika og baksviðs ef við vildum... Föstudagurinn fór því í flakk á milli tónleika og svo eftirpartý fyrir svona V.I.P. fólk eins og okkur... Bítlabolur minn vakti mikla lukku (í raun öfund flestra)...
Um nóttina gistum við heima hjá vinkonu Lindy sem heytir Doonja (veit ekkert um stafsetninguna)... Við komum heim dauð uppgefnir eftir alla þessa keyrslu (aksturinn var líka pínu þreytandi)... Þá bíður okkar steiktar kjúklingarbringur, grænmeti og pasta í veitingargæðum... Um morguninn eru nýsteiktar "crepes" með osti og vanillu tilbúið handa okkur...
Ég skellti mér í snögga sturtu... besta sturta sem ég hef prófað... það var þess virði að keyra þessa leið bara til að fara í sturtu... Svo gerði ég eitt sem ég hef ekki gert í LANGAN tíma... ég gékk beint á svona "screen door" sem liggur út í garð... var búinn að gleyma að svoleiðis væri til... ái...!
Svo keyrum við um Montreal... Við fórum uppá fjallið sem Montreal stendur við... Það heytir Mont Royal... Montreal... MontRoyal... MontReal... hmmm.... so now you know... Síðan fékk ég mér sérstakt Montreal góðgæti sem var Smoked Meat Sandwich sem er basicly kjötsamloka með kjöti, kjöti og kjöti á kjöti. Einnig er sinnep og kjöt... Mjög gott... Svo var farið á fleiri tónleika frammá nótt og svo hangið baksviðs þar sem ég skemmti fólki með sögum frá fjarlægu landi... John Lennon bolur minn vakti enn meiri lukku en Bítlabolurinn...
Þegar við komum heim bíður okkar aftur steiktar kjúklingabringur, grænmeti og pasta...! Þvílíkt lostæti... Um morguninn fékk ég loksins að hitta huldukokkinn sem er búinn að vera dæla í okkur mat... Það er mamma hennar Dooju... Hún gerði fyrir okkur sérstakar pólskar pönnukökur með eplum og enn fleiri crepes... Ég held basicly að allar kanadískar morgunverparmáltíðir samanstanda af "hlutum sem hægt er að drekkja í sýrópi"... Svo smurði hún handa okkur nesti líka fyrir bílferðina... fullt af ávöxtum, muffins og svo tvær langlokur með heilli kjúklingabringu og osti... Þessi kona gefur orðinu "gestrisni" nýja merkingu...
Keyrt var til Toronto á góðum tíma og við enduðum á barnum sem Lindy spilar vikulega... Eftir það var okkur boðið í eftirpartý með einhverju fólki þar sem tekin voru nokkur vel valin lög á gítar... Allt frá frumsömdum lögum sem Lindy gerði, erlendir slagarar og svo Á Sprengisandi og íslenski þjóðsöngurinn...
Í morgun fór ég þreyttur en ánægður aftur til Oakville til þess að leggja stund á námið mitt... Á leiðinni heim er ég að skoða glósur mínar og rekst á ferskeytlu sem ég samdi á ensku til að sýna Lindy hvernig ljóðakerfið virkar... Þetta er fyrsta ferskeytlan sem ég sem á ensku og hljómar hún einhvernveginn svona...
Laughing hard with Lindy,
lager´s tasting swell.
Feeling very windy,
waster from Taco Bell...

fimmtudagur, september 25, 2003

Ég var að muna í dag að ég hafði aldrei áhyggjur um að ég kæmist ekki inní skólann... mig dreymdi oft í vetur, vor og sumar að ég væri í skóla að læra um allskonar hluti tengda framleiðslu í kvikmyndagerð og sjónvarpsþáttagerð... allt var skrifað á ensku og kennarinn talaði líka ensku (náttúrulega)... Núna hef ég mjög oft á síðustu vikum fengið Deja-Vu og kannast við bæði stofuna, stúdíóið, kennarann og efnið sem hann var að tala um... Núna er ég að leyta að einhverjum sem ég sagði frá að mig dreymdi að ég væri í erlendum skóla svo að ég fæ staðfestingu um að ég sé í framtíðina... Nú síðast var ég í einmitt í stúdíóinu og kennarinn var að sýna okkur slideshow um innri gerð sjónvarpstækja og var að tala um skuggasígur... ég hef aldrei áður heyrt að það sé skuggasíga í sjónvörpum en ég vissi það áður en kennarinn útskýrði hvað var á myndinni... Ég sagði það 100% við einhvern í sumar að mig dreymdi að ég var í kennslustund og kennarinn var að tala um skuggasígu (skadowfilter)... en hverjum sagði ég það... man einhver eftir því...?
Ég var að finna mjög fljótlega og árangursríka leið til að láta íbúðina lykta eins og japanskt veitingarhús... að vísu braut ég óvart fulla flösku af soya sósu á eldhúsgólfinu... en það er auka atriði...
Ég ætla að fara á morgun með frænda mínum til Montreal í franska hluta Kanada... Þar er einhver stór tónlistarhátíð... Ég vona að Celine Dion troði ekki upp... Við förum tveir akandi... tekur um 5 tíma... leggjum að stað strax eftir skóla klukkan 3... Gaman að fá að sjá aðra hluti þessa stóra lands... Ég verð búinn að ganga frá öllum heimaverkefnum áður en ég fer... Ég verð svo tölvusambandslaus alla helgina þannig ekkert blogg fyrr en á mánudaginn (eða sunnudagskvöld)... Það vera hinsvegar góðar sögur þegar ég kem aftur...
... to be continued...
Enn meiri heimavinna... ég á að horfa á American Beauty (geðveikislega góð mynd)... En ég er ekki með vídeó né DVD hér (OK, DVD í tölvunni), þannig ég neyðist til þess að fá lánaðan endurgjaldslaust sýningarherbergið hér á minni hæð á heimavistinni með 60 tommu skjánnum og kvikmyndasætum...
Úff, það sem ég þarf að sætta mig við...

miðvikudagur, september 24, 2003

Ég er kominn með svo mikið leið á sjónvarpi... ég hef ekkert horft á það þegar ég bjó í Grófinni... núna hef ég 100 stöðvar og engan góðan þátt... Raunveruleika þættir allstaðar... Bjakk... Það er það sem gerir handritshöfunda eins og mig atvinnulausann... Fá bara hóp af svikulum Könum og troða þeim á eitthvað afmarkað svæði og láta það rífast... Vill einhver mótmæla þessari staðhæfingu...?
Að vísu hef ég dottið inní eld gamla þætti sem mér finnst gaman að sjá... Gamla Staupastein, The A-Team (veit einhver hvað það er? (Mr.T anyone?)) og Bosom Brothers (þáttur frá 198? þar sem Tom Hanks klæðist kvennmannsfötum til að búa í ódýrri íbúðarblokk)...
Samt með 100 stöðvar man ég ekkert hvar ég sá þessa þætti né hvenær þannig ég nenni ekki að leyta aftur... mínum tíma er betur varið á svo marga vegu...

þriðjudagur, september 23, 2003

Var að koma úr stúdíó tíma... Þar var valið að framleiða mína auglýsingu fyrir kennsluna ásamt tveimur öðrum... Ég var svo valinn til þess að leikstýra... Þokkalegt! Mín auglýsing er flóknust af þeim öllum og er hún því aftast í framleiðslu línunni... Það verður ein gerð í næstu viku, önnur þar næstu og svo er komið að mér til að láta ljós mitt skína eftir þrjár vikur... Ég er ennþá að fullklára handritið og mun náttúrulega birta það hér þegar það er tilbúið...
Já... Ég á einnig að leika aðalhlutverkið í einni auglýsingu... hmmm... besta að æfa mig meira í enskunni...

mánudagur, september 22, 2003

Herbergisfélagi minn gerði þau mistök að kaupa Wonderbread... Fyrir þá sem ekki hafa búíð í Ameríku þá er Wonderbread brauð (döhh...) sem er með sama bragð og áferð og frauðplast nema ekki eins bio-degradable... Réttast væri að kalla þetta WonderIfTheyCanDigestThisBread... Einnig keypti hann Miracle Whip sem er í raun majónes með mikilmenskubrjálæði... ég meina hversu mikið álit hefur fólk á þessari vöru til að kalla það "Miracle" Whip... Ég prófaði að setja því Miracle Whip á Wonderbread... Það eina sem vantaði var gott kjötálegg... kannski Holy Cow...?
Ég hef ákveðið að gefast ekki upp á grillinu í eldhúsinu... Þó svo að það hefur tvívegis leikið kjúklinginn grátt (í raun leikið hann sótsvart) þá tókst mér að gera geðveika hamborga í gær með gráðosti og hvítlauk og er því allt fyrirgefið... einnig starfar það vel í að grilla samlokur og beyglur... Er að safna kjarki í að prófa kjúklingagerð einu sinni enn... þriðja tilraun með kjúlla var semi-góð, þolinmæðin brást eftir að kjúklingurinn hafði setið þarna í óratíma og endaði matreiðslann í örbyljuofninum... Maður á ekki að elda kjúkling í örbylgjuofni... Rubber Chicken anyone...?

sunnudagur, september 21, 2003

Jæja... loksins búinn með banana myndirnar... 36 (eða jafnvel 37) myndir... Nú þarf ég bara velja 20 bestu til að setja upp á spjald og skila inn... endilega komið með skoðanir um hvað ykkur finnst flottast...
Hvað er málið með Ameríku og umbúðir... Allt er pakkað inn fimm sinnum meira en stykkið sjálft... Ég keypti Amerískan Cheddar ost í sneiðum og hver einasta sneið er umpökkuð inní þéttu plasti og svo er þeim sneiðum pakkað inní öðrum pakka sem er síðan sett inní aðal umbúðinar...! Það tekur mig fimm mínútur að setja ost á brauðið mitt! Úff, maður nennir ekki að setja fleiri álegg á brauðið... of tímafrekt...

laugardagur, september 20, 2003

Á dagskrá í dag... 36 banana myndir... Deja-vu...! Sólin er kominn út þó svo að það er rétt dagur frá "fellibylnum"... Iss, fellibylur hvað... Ég hef séð meiri vindgang eftir góða mexikanska máltíð... eða slæma...
Jæja, eldamennska tilraun 2 fór í gegn í gær... Innihald var kjúklingaleggir í sterkri chilly sósu... afraksturinn... Black and Crispy...! Svei... Ein enn heiðarleg tilraun í kvöld til að matreiða kjúkling... Vona hann verði ekki eins stökkur... þetta tekur svo á tennurnar...

föstudagur, september 19, 2003

Hér er auglýsing sem ég skrifaði fyrir útvarp...
(SCANDINAVIAN FOLK MUSIC PLAYING)
ANNOUNCER All right everybody! Come on down for the grand opening of an international restaurant of the likes you’ve never seen! Straight from the land of ice and snow, with the midnight sun and where the hot springs flow.
SOUND FX OF GEYSER ERUPTING
ANNOUNCER We’re bringing you the finest food Iceland has to offer. For starters we have burned sheep face in a jelly or straight off the smiling scull!
SOUND FX OF A SHOTGUN AND A SHEEP BAAHING
ANNOUNCER We even left in the brain, tongue and eyes, which you can scoop out as an extra treat.
SOUND FX OF SQUISHY SOUND
ANNOUNCER We also have both liver sausage and blood sausage in sheep’s gut so tasty, the Scottish are envious.
SCOTTISH MAN Thatsh truu!
ANNOUNCER Also try our seafood buffet with exotic dishes including cod belly stuffed with cod liver, raw seal and seal blubber, dolphins and different kinds of whale including the orca
KID YELLING Free Willie!
ANNOUNCER Well, he’s not free, but at a price that’s hard to beat.
SOUND FX LAUGHING
ANNOUNCER We also have shark, stinky and old just like the Vikings ate them and still do. Mmmm, smell that ammonia. Beats having to piss on it yourself.
SOND FX OF PISSING
ANNOUNCER Finally you wash that down with a shot of Burning wine.
SOUND FX OF SCREAMING
ANNOUNCER So come on down with the whole family for a tasty meal you’ll never forget. And remember. This opening week, it’s all the Ram testicles you can eat, straight of the beast.
SOUND FX OF SCISSORS GOING SNIPP SNIPP
SOUND FX OF A RAM BAAHING PAINFULLY
ANNOUNCER Yes, Come all to the Jolly Viking and have a ball.
Þetta er bara byrjunin á auglýsingunni... Síðan á að koma önnur rödd sem segir eitthvað á þá leið: "Eða ef þið viljið fá ferska grænmetisrétti og pasta kíkið þá á okkur hjá Greenie´s Deli..."
Þannig með því að lýsa svona sterkum andstæðum ætti seinni staðurinn að heilla meira... skil ekki af hverju samt... mmmmm, höfrungur...

fimmtudagur, september 18, 2003

Var að erlda mína fyrst máltíð á eldhúsgrill/hellunni sem við keyptum og þar af leiðandi fyrsta almennilega máltíð mín á heimavistinni... Ég grillaði kjúklinabringu, legg og upplæri og verð ég að segja að eldamennskan tók alveg einstaklega... um... ílla... eða misheppnaðist rosa vel... Mér tókst að brenna hann allan að utan, ofan á sem undir en hinsvegar skilja eftir mest megnis hrátt inní honum...Crunky on the outside, creamy on the inside... Ég skar hann því í sundur og grillaði hráa hlutann þangað til ég brenndi hann en skild eftir hráan flöt inní því stykki... svo skar ég það í sundur, grillaði hráa hlutann uns það var svart og stökkt eins og hinir bitanir... Það var allavega samræmi á útlitinu...
Burger King anyone...?
Stormviðvörun í gangi hér... Það var hringt á öll herbergi og sagt að það gæti verið að rafmagnið fari í nótt... því þá skellur á fellibylir, sá stærsti í 50 ár... Reiknað er með að ýmsu verði lokað á morgun... fyrirtæki, skólum og fleira... Spurning hvort fært verði á milli bæja þannig sumar kennslustundir gætu dottið út ef kannarinn býr langt í burtu... nú er bara að bíða og sjá... En náttúrulega fellibylur hér er eins og týpísk vorrigning heima... No worries mate...!
Jæja, var að koma úr verslunarferð... Það kemur strætó frá stórri verlsunarkeðju og sækir okkur á heimavistina og fer með okkur í stórmarkaðinn... Strætóinn var meira en pakk fullur á leiðinni þangað, síðan á leiðinni tilbaka var sama fólkið nema allir með 10 poka af mat þannig það var svo troðið að það fór aðeins vel um sardínurnar í dósunum...

þriðjudagur, september 16, 2003

Heimaverkefnin eru að detta inn... Fyrir utan þessar bananamyndir sem ég á ENNÞÁ eftir að klára þá á ég að vinna aðeins í Adobe Illustrator, hlusta á eitt lag og greina öll hljóð í því (er að hugsa um Pink Floyd - Wish You Were Here), síðan á ég að skrifa eitt handrit fyrir auglýsingu í útvarpi og svo annað handrit fyrir auglýsingu í sjónvarpi... Ég ætla að skrifa útvarpsauglýsingu um nýjan íslenskan skyndibitstað sem var að opna (allt skáldað samt náttúrulega)... Þar verður boðið uppá hrútspunga, sviðakjamma og sultu, blóðmör, hákarl og fleira... Hvaða mat muniði eftir sem ég get bætt á þennan lista...? man ekki hvað er í Þorrabökkunum... Jú! Þrumari... Yess!
Eitthvað fleira...? Eitthvað sem sjokkerar útlendingana...
Jæja... Ég er orðin Class Reprisenitive fyrir sjónvarpsstúdeó tímann... Það er ekki að mig langaði að verða það, það er bara að engin treysti neinum öðrum til að sinna þessu nema mér... Ég tók því starfið á mínar hendur sem aldursforsetinn... Engin smá forseti...! Ég er að nota ljósmyndavél sem er eldri en flestir þarna...

sunnudagur, september 14, 2003

Kominn með nýtt símanúmer... (905) 617-4878... Þetta er GSM sími minn... svo er ég með síma á heimavistinni (905) 815-4150 extention 7409... Endilega hringið frekar á heimavistina því það kostar mig ekki neitt... ég verð að borga fyrir símtöl sem ég fæ á GSM... Svei það...
AAAAAAArrrrrrggggghhhh!!!
Á föstudag eyddi ég fjórum tímum í að ljósmynda banana á ýmsa vegu... Ég þarf að skila þessu inn á mánudegi þannig ég framkalla myndinar á laugardeginum í Torontó
áður en ég hitti frænda minn... MYNDIRNAR KOMU EKKI ÚT...! Filman var vitlaust hlaðin þannig ekki ein mynd var framkölluð...! Planið var að vera nóttina í Toronto með frænda en vegna myndanna varð ég að taka síðustu lest tilbaka svo ég hefði tíma á sunnudeginum til þess að taka myndir og framkalla áður en búðirnar loka... Ég djammaði samt vel á heimavistinni og reif mig upp of snemma til að ljósmynda aftur... Ég er núna "bara" tvo tíma að taka 36 myndir af bönunum, æði svo út í verslunarmiðstöðina og læt framkalla myndirnar... MYNDIRNAR KOMU EKKI ÚT...!!! Aftur vitlaus hlaðin vél og engar myndir... Núna verð ég að taka aðrar 36 myndir af bönunum og er þá summa myndanna sem ég hef tekið af bönunum 108 stykki!!!
Sem betur fer var ég að heyra að ég þarf ekki að skila þessu fyrr en á föstudaginn...! Ég ætla taka mér dagsfrí frá ljósmyndum áður en ég byrja á ný að taka SÖMU MYNDIRNAR AFTUR...!!!
AAAAAAAARRRRRRGGGGGGHHHHH!!!!!
Sá loksins frægar persónur á kvikmyndahátíðinni... Þau voru aðalleikaranir í mynd sem hét The Snowwalker... Ég veit samt ekki hvað ég er að gera vitlaust því allir hér eru búinn að sjá fólk eins og Ian McKellen, Jack Black, Nicole Kidman, Woody Harrelson og fleiri... Ég sá þarna Barry Pepper (snjalla mannveran í Battlefield Earth), lúða endurskoðandann í The Untouchables, Svínabóndann úr Babe (og Babe Pig In The City) og inúíta... YES...!
Var að labba framhjá skóginum núna klukkan 2:00 um nótt á staðartíma því ég var að koma frá kvikmynfasýningu í Toronto... Ég stoppaði við í matvöruversluninni og keypti inn fyrir ljósmyndaverkefnið mitt... Ég er labbandi tilbaka með 5 kíló eða meira af bönunum... Mikið fannst mér eins og öll augu skógarins voru að fylgjast með mér labba framhjá... Ef íkornanir og þvottabirnirnir ynnu saman hefði ég verið dauðans matur... ja, tæknilega séð ekki dauðans "matur" því dýrin hefðu étið bananana en ekki mig...
Gerði tvennt í fyrsta sinn á ævinni í gær í borginni... Ég fékk mér Taco Bell og drakk Dr. Pepper... How American is that...? Það eina sem er eftir er morgunmatur á IHOP (International House Of Pancakes) og fá mér pallbíl...
Hvað með "mullet"...?
Önnur ferð í stórborgina í dag... Fór í gær á tvær myndir með félaga úr skólanum... Hann keyrði þannig ég fékk að sjá þá leið... leið sem ég myndi aldrei rata þótt líf mitt lægi undir (OK, kanski ekki mitt... en ykkar, sorry)... Í dag fer ég einn í lest, hitti frænda og fer svo í bíó... Þá er sú heimavinna búin... næst á dagskrá er 36 myndir af bönunum... Leit að litlum sólgleraugum fyrir þá er hafin og gengur ekki vel...
Herbergisfélagi minn er listamaður... stundum efast ég um hæfileika hans og í raun geðheilsu... Við vorum í Toronto á laugardaginn og hann segir við mig: "Hey, I really want a tatoo of a tunafish"... Allavega, leiðir okkar skiljast, ég sé hann aftur á mánudeginum... Þá er gaurinn kominn með tattú af túnafiski á upphandleggnum... TÚNAFISKI...! Hann var meira að segja blá edrú þegar hann gerði þetta... Svei...
Orðin "hooked" á Maccarony and Cheese... hafði ekki étið það í fleir fleiri ár en núna er það það eina sem ég nenni að elda því ég er bara með örbylgjuorfn... Það er samt eldavél á hæðinni með ofn og hellum en til þess að nota það þá verð ég að fara í anddyrið, skrá mig inn og skilja eftir skilríki sem ég fæ ekki aftur fyrr en ég er búinn að hreinsa allt eftir mig og ganga frá... Ég held að maður þarf jafnvel að skilja eftir blóðsýni og veð í heimili manns...
Útgjöldin tengd skólanum eru verulega að staflast upp... Þetta er listi yfir hluti sem ég er búinn að kaupa:
Heyrnartól 150 CAD
Ljósnemi 200 CAD
Ljósmyndavörur s.s. filmur 100 CAD
Skólabækur 200 CAD
Bíómiðar 50 CAD
Lestarferðir og strætó 50 CAD (og þeim fer fjölgandi)
Svo mun ég þurfa að framkalla hverju filmu og kaupa allskonar hluti tengt myndefninu... God only knows hve marga banana ég þarf að fara í gegnum fyrir næsta ljósmyndaverkefni... Spurning um bara kaupa brúna gamla banana á stórum afslætti og hafa svona "rotnandi" thema... eða Banana Zombies...!
Svo þarf ég að kaupa skólabækur fyrir einhver hundrað CAD líka... úfff...
Er það nú stundarskrá... Núna á viku 2 fyrst allir tímanir eru komnir á hreint þá sé ég að á þriðjudögum er ég í tíma frá 8-11 og svo búinn... hinsvegar næsti tími kemur á miðvikudegi 7-10... nema eftir hádegi... s.s. 19-22...! Það er því 32 klst á milli tíma... frekar erfitt að sofa yfir sig allavega...
Lærði miklivæga lexíu um helgina...
Að horfa á hokkíleik á fremsta bekk er mjög ofarlega á lista yfir "Hluti sem maður gerir ekki í stuttermaskyrtu"...
Laugardagsmorgun (já, morgun) var farið með strætó niðrá lestarstöð... Þar er hálftíma ferð til stórborgarinnar Toronto með Go-Train... Þegar þar var komið var farið í blindni inní einhverja neðanjarðarlest áður en rölt og leit að kvikmyndahúsi hófst vegna heimavinnu minnar...
Fyrir utan kvikmyndahúsið var RISA stór röð af fólki og það fólk með tilbúna miða... Svo var önnur RISA RISA sem var fólk að bíða eftir mið ef eitthvað skyldi losna... Ég fer alveg fremst og er að spyrjast fyrir hvernig þetta kerfi virkar og þá kemur kona út og kallar hver vill fá miða... Ég var náttúrulega fremstur og tók við miðanum og fékk þannig frítt í bíó... Það var fín þýsk mynd sem hét Gun-Shy... Ég vildi frekar sjá aðra mynd en það var ekki feitur séns í helvíti að fá miða á þá mynd, uppselt fyrir mörgum dögum... Ég kem úr bíóinu og er að labba við innganginn aftur þegar einhver allt önnur kona labbar út og spyr hvort einhver vildi fá miða... Ég var aftur óvart alveg fremst, hirti miðan og sá þá myndina Game Over: Kasparov Vs. Deep Blue, myndin sem ég fór upphaflega til Toronto til að sjá... Lucky Bastard... og það var sama fólkið ennþá í sömu röðinni og þegar ég kom fyrst að tveimur tímum áður...
Eftir þetta fór ég til frænda míns (langafi hans og langa langafi minn eru bræður)... Hann ólst upp í Canada en getur raulað á íslensku... Hann er líka rosa góður tónlistarmaður... Við fórum út á lífið og hann sýndi mér borgina...
Sunnudagurinn byrjaði seint... sofið til 15:00, alvöru amerískar pönnukökur í morgunmat og svo fékk ég leiðsögn um bæinn... Við gengum fleiri fleiri kílómetra um Toronto og veit ég núna miklu betur hvernig landið liggur... Ég verslaði aðeins það sem ég þurfti fyrir skólan en sá að ég yrði að klára restina á mánudeginum...
Um kvöldið fór ég með frænda mínum (Lindy) á bar þar sem hann spilar vikulega... Þar tróðu upp ýmsir tónlistarmenn allt kvöldið og svo í lokinn tóku þeir allir svona "djamm session" saman á sviðinu... Stemningin var geðveik og var ég dreginn uppá svið til að taka þátt í djamminu... Barði ég góðan takt á "Cowbell" (Kúabjöllu, duh) við djasslag ásamt 7 manna hljómsveit...
Kvöldið endaði á rokkaðri útgáfu af "Á Sprengisandi" (Ríðum, ríðum laginu) sem Lindy endar öll kvöldin á...
Í morgun vaknaði ég snemma, fór á röltið einn... Þræddi hverja neðanjarðarlest á eftir annari, hoppandi milli búða í leit að góðum heyrnartólum og tölvumús... Eftir tvo daga í borginni er ég flugfær í að rata hvert sem er á góðum tíma... Ferðinar í stórborgina mun fjölga gífurlega...
Magnað heimaverkefni... Ég á að taka myndir af bönönum (banönum... um, whatever) eða eplum... ekki bara nokkrar myndir heldur heila filmu... 36 myndir... talandi um að verða Fruity... Bananananar verða fyrir valinu hjá mér... Það er eitthvað svo heillandi við formið og gulleikann... í raun held ég að ég skjóti bara það sem er ódýrara... Endilega komið með hugmyndir af myndum sem ég ætti að taka...
Nafnið "Raggy" virðist ekki ætla að festast við mig... Allir eru bara að kalla mig "Iceland!" (Já, með upphrópunarmerki (fólk segir það bara með innlifun))... Það er helvíti gaman að vísu... Einnig tíðkast að segja Ice eða Iceman... meira að segja kennaranir kalla mig Iceman... Spurning fyrst ég man engin nöfn að kalla hina alla bara "Canada"...
Það eina sem ég hef út á að setja við herbergið mitt er sturtan... Hún er svo svakalega hávær... Það er eins og Boeing 737 flugvél að taka á loft með bilaðann hljóðkút... Mér finnst ég verða að biðja um lendingarleyfi áður en ég stíg úr sturtunni...
Þriðji dagurinn í skólanum búinn og allt gengur vel... Komið að vísu smá "conflict" í heimanámið... Á einum stað var okkur sagt að horfa ekki á sjónvarp í 2 vikur en á hinum staðnum var okkur sagt að horfa á einn þátt...
Sjálfur hef ég lítið haft tíma fyrir sjónvarp því maður er alltaf að gera eitthvað.
Var orðin pínu órólegur yfir ferðinni framm undan... Sem betur fer fór ég aðeins út með góðu fólki í smá bjór og var það þægilegt að kveðja landið og fólkið þannig... Svaf svo síðustu nóttina í Grófinni en varð svo að æða um hádegi til foreldranna til að klára að pakka... Var með tvær risa stórar töskur pakk fullar en sá að mér að létta þær aðeins því kraninn á vörubílnum sem hélt á þeim brotnaði... Fór því með eina risa tösku (aðeins léttari, næsti krani bara svignaði) og bakpoka...
Ferðaáætlunin mín breyttist verulega frá þeirri upphaflegu. Það sem var Keflavík - flug - Boston - flug - Toronto varð Keflavík - flug - New York - lest - Toronto... Ég lét breyta miðanum seint á föstudeginum og sagðist vilja fara til New York í stað Boston á sama degi... Hún sagði að það væri ekki flogið til New York á þessum degi sem mér fannst slæmt því ég var þegar búinn að bóka og borga lestarmiðann... Þá komst ég að því að Boston flugið átti að vera á sunnudeginum... degi of seint!!!... Sem betur fer þá að ég fann enga tengingu frá Boston með flugi því þá hefði ég misst af því... Það var hinsvegar laugardagsflug til New York og tók ég það... Sökum hinsvegar seinnar bókunar og seinnar komu á flugvöllin þá var allt fullt og ég neyddist til þess að sitja frammí á Saga Business Class þar sem þeir píndu ofaní mig kampavín og alls konar góðgæti... Ég fékk að vísu ekki allan lúxusinn og hinir... Til að byrja með var ég í þrengsta Saga Class sætinu... röð 8 við neyðarútganginn... ATH. Ef þið farið Saga Class, EKKI fara í röð 8, það er eins og venjuleg sæti... Fyrir utan að vera í þröngu sæti þá sat ég við hliðina á konu sem var með ekta amerískann RISA hamborgarrass sem flæddi undir og yfir sætisarminn (ég segi RISA hamborgara rass en það var í raun Double Whopper Delux Big Mac Extra Bacon and Cheese Heavy Special Hamborgara rass (það bara hljómar ekki eins vel))... Svo fékk ég ekki DVD spilara fyrr en gestirnir sem borguðu fyrir Saga Class voru hætt að nota þá og einnig fékk ég ekki að velja rétt að matseðlinum fyrr en eftir að allir voru búnir að velja... Ég "neyddist" því til að fá mér grillaða önd (YEAH! Namm) og lax í forrétt...
Ég var fyrstur úr vélinni og í vegabréfaeftirlitið... Tók þar við mér þunglyndur vörður og byrjaði samtalið okkar svona.
Þunglyndur vörður: Those big in Iceland...? (bendir á Bítlabolinn minn)
Ég: No, I'm just crazy...
Af öllum svörum sem til eru við þessari spurningu eða í raun hvaða spurningu sem er, þá er "No, I'm just crazy..." frekar ofarlega á listanum yfir hluti sem maður á EKKI að segja við tollafgreiðslumann í New York...
Ég komst samt framhjá honum en var vísað til hliðar í tollskoðunina þar sem tók við mér risa stór gaur í bláum gúmmíhönskum... AHEM...! Mér var ekki farið að lítast á blikuna... Hann kíkti samt ekki á neitt bara spurði fullt um ferðir mínir: "I'm going to school in Canada but not because I'm crazy hehe"...
Svo var leigubíll út á hótel sem var rétt hjá lestarstöðinni í miðbæ Manhattan... Ég er kominn um 21:00 á frekar lítið hótel, hendi inn farangrinum og ákveð að spóka mig um, átta mig á staðsetningunni og ná svo í lestarmiða minn svo ég rata á lestarstöðina um morguninn... Mental Note: Passiði ykkur á lyftunum í litlum hótelum... Ég er að taka hana niður af 11. hæð í rólegheitunum... Ég stend rólegur og er að horfa á tölunar á hæðunum sem ég fer framhjá... 11-----10-----9-----8(DÚNK)7654321... Lyftan stökk þarna í "dúnk"inu, keyrði hraðar niður og ég heyri í nokkrum skrúfum detta hingað og þangað... Ég fór frá 7 til 1 a mettíma... labba þá út úr lyftunni en átta mig á að ég er á fimmtuhæð... Stiginn var mjög freistandi þaðan í frá... Ég komst samt út á röltið... Ég verð að venja mig hinsvegar að líta oftar upp til að finna kennimerki... var kominn tvo hringi í kringum Empire State bygginguna áður en ég tók eftir henni... Eftir þetta fann ég mexicanskan (maður á að segja mexikóskan en ég mun ALDREI gera það) stað... Fékk frekar slappa tortiu en það var nóg svo ég var ekki svangur... Fór svo á röltið aftur ég endaði á írskri krá... Þar voru hinir girnilegustu réttir líka en því miður var ég pakk fullur af hveiti og þriðja flokks kjöti og baunum...
Fór heim um miðnætti og lagði mig, vaknaði klukkan 3:00 um nóttina og gat ekki sofið... Fann sjónvarpsstöð sem sýndi "modern classics" sjónvarpsþætti og var það basicly allt sem ég horfði á frá 1983-1987 þegar ég bjó úti í U.S.A.... Stærsta flashback dauðans EVER...! Klukkan 6:00 fer ég á lestastöðina og tek svo lestina frá 07:15-20:00... Sat upphaflega við svo rosalega bólugrafnum unglingi að ég óska að ég væri með regnhlíf ef eitthvað skyldi springa... Það var gott að taka lest því hún stoppaði í bæ sem heytir Oakville á undan hún stoppaði í Toronto og vill svo til að það er einmitt bærinn sem skólinn er í (40 mín í burtu frá Toronto)... Svo var það 3 mín í leigubíl og var ég kominn á heimavistina...
Ég fer inná herbergi mitt og hitti þar Jon (Jonathan McFall) herbergisfélaga minn... Fórum svo í partý og ég kynnst fullt af fólki... Daginn eftir labbaði um svæðið að skoða mig um... Um kvöldið var stór fundur fyrir fyrsta árs nema og okkur sagt reglunar en svo var skemmtiatriði í formi fjármála fyrirestar af uppistandara kallað Funny Money... það var alveg drep fyndið show... Svo bað hann alltaf um sjálfboðaliða til að aðstoða sig og fékk fólk 5 dollara ef það kom upp og hann sagði að einn myndi fá 100 dollara... Ég bauð mig því einu sinni fram sem var gaman því gaurinn spurði fólk alltaf hvaðan það koma, sagði brandara um staðinn og hélt svo áfram...
Hann: So where are you from?
Ég: Iceland...
Hann: Yeah, so that's... um... ah... (hissa) Seriously...?
Daginn eftir var fyrsti skóladagurinn... Skólinn er í 10 samtengdum byggingum við heimavistina og er skipulagið hannað eins og völundarhús nema af betri verkfræðingum... Ég gékk um hring eftir hring eins og hauslaus hæna en tókst að mæta allstaðar sem þurfti og gera allt... Allstaðar hinsvegar var fólk að kinka mér kolli og brosa til mín og vissi ég ekki hvort ég var búinn að heilsa fólkinu á sunnudeginum eða það bara vissi að ég var Íslendingur... Inná milli kemur svo fólk og labbað að mér og segir "Iceland" og heldur áfram eða stoppar og spjallar... (Í þessum töluðu (blogguðu) orðum núna sast gaur við næstu tölvu, segir "Iceland" og "I'm Steve by the way")...
Í gær fékk ég svo laptop tölvuna mína sem því ver og miður er Apple Macintosh iBook... Núna er ég að hlaða hana og hún verður tilbúin til notkunnar (eða misnotkunar) á morgun...
Eftir skólann í gær labbaði gær að mér við heima vistina og segir "Iceland" (hvaða annað?) og kynnir sig... Hann er á þriðja ári í því sem ég er og sagði hann mér ýmislegt um skólann... Drukknir voru nokkrir bjórar um kvöldið og ég hitti ennþá fleiri manns... Ég man núna að ég held 2 nöfn... Brian og Nick... en veit ekki hver á þau...
Stefnan er að kíkja í "mall"ið og klára að versla það sem ég þarf... Herbergisfélagi minn var kominn næstum viku á undan mér og var því búinn að versla ýmislegt... Ég hefði aðeins átt að skoða betur hvað það var því ég vaskaði upp með klósett hreinsiefni...
Heimavinnan sem ég er kominn með er að fara á Kvikmyndahátíðina í Toronto og sjá 5 myndir, og svo horfa ekki á sjónvarp í 2 vikur (no joke) og segja hvað maður gerði í staðinn... kennarinn í raun hvatti mann til að fara út og drekka í staðinn (no joke heldur)... Ég held að mér er eftir að líka vel við þennan stað...
Hér munu birtast greinar um uppátæki mín af afrekstur í námi mínu í Canada... Góða skemmtun... Stafsetningarvillur og málvillur munu verða tíðar og eflaust fjölga eftir því hve lengi ég er úti talandi ensku...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?