föstudagur, október 31, 2003
Fer að fara í stórborgina bráðum... mun eflaust ekki blogga fyrr en á sunnudagskvöld (Canadatíma náttúrulega)... Góða helgi...
Góð helgi framundan... Lindy frændi ætlar að draga mig í nokkur Halloween party allan föstudaginn... Halloween í Toronto verður örugglega snilld af hæðstu gerð... Á laugardaginn er svo matarboð með einhverjum Íslendingum... Það er bara vonlaust að hætta að tala íslensku hér... Mig vantar hinsvegar hugmyndir fyrir grímubúning... Er algjörlega hugmyndasnauður... Hef nokkra tíma til þess að gera/finna eitthvað í fyrramálið fyrir kvöldið... bara spurning hvað... ATH. Ekki segja víkingur... Það segja mér allir að vera víkingur... frumleikinn stoppar þar i Canada...
Tölvukennarinn minn sagði að ég mætti sleppa við að mæta í alla tímana það sem eftir er af önninni og ég fæ samt "A"... Mig langar samt að mæta því mér finnst þetta einn skemmtilegasti tíminn... Við erum að gera Photoshop verkefni og ég er náttúrulega með margra margra ára reynslu í því forriti... Ég var að nota Photoshop áður en fólkið hér var að fermast (eða Barmitzvast)...
fimmtudagur, október 30, 2003
Úff, var að fá úr hljóðfræði... Það var svo svakalega erfitt próf að kennarinn varð að lækka einkunnar kúrfuna aðeins... þannig ég endaði með 102%... Út af því hvernig hærri einkunn gefa lærri bókstaf í stafrófinu þá veit ég ekkert hvernig ég get táknað einkunina... Hvað er lærri en A...? Er til -A (ekki A- það er verri einkunn)...? Eða kemur "0" (núll) á milli... Eflaust væri ég þá með 0- eða -A-... Not too shabby...
Skrítinn fróðleikur sem ég lærði í sjónvarpsstúdíó tímanum í dag. Við vorum að læra um upphaf segulbandsins, sem síðar varð náttúrulega myndband... Ég ætla að segja söguna afturábak því byrjunin er lang áhugaverðust... Fyrirtækið sem kom með segulbandið og segulbandstækið á markaðinn um 1953 heytir AMPAX... Því fyrirtæki var borgað 50.000 (sem var stórfé þá) af söngvaranum/leikaranum Bing Crosby til þess að hanna þetta segulbandstæki eftir öðru tæki sem hann hafði komist í... Hann komst í svipað tæki í seinni heimstyrjöldinni frá hermanni í deildinni hans... Hermaðurinn fann þetta tæki í einhverjum höfuðstöðvum Nasista... Hvergi annarstaðar í heiminum var til nokkur sambærileg tækni sem notaði segulbönd til þess að afrita hluti...
Þannig ef einhver spyr: "Hver fann upp segulbandstækið" Þá er svarið: "Óþekktir Nasista vísindamenn sem notuðu tæknina bara í nokkur ár áður en henni var stolið af Bing Crosby."
Mér finnst þetta vera aðeins meira en "useless information"...

þriðjudagur, október 28, 2003
Er heimurinn að fara minnkandi...? Var að tala við Lindy frænda... Um helgina hitti hann Sigrúnu Stellu, vinkonu svilkonu minnar, Agnesar, í partý... Þá kom í ljós að þau eiga sama hóp af vinum... Toronto er ein stærsta borgin í N-Ameríku og eina fólkið sem ég þekki þar, þekkist líka (og ekki í gegnum Íslendingafélagið)... Jamm lítill heimur... ég er að fá innilokunarkennd...
Tók próf í gær, annað í dag... Gékk vel í báðum... Fékk svo auglýsingu mína tilbaka, búinn að afrita hana á spólu, þannig að þegar ég fæ cameru næst (föstudaginn), þá set ég hana á tölvuna og svo á netið (don't hold your breath að þar verði samt strax á föstudeginum)... Verkefni framundan: Skrifa tveggja blaðsíðna handrit fyrir föstudag (iss, get gert það í svefni), fínpússa útvarpsauglýsinunga (5 mínútur tops) og svo taka 10 myndir sem tákna: "Hvernig er það fyrir MIG að vera í skóla"... Ein mynd sem ég ætla pottþétt að taka er mynd af tómu veski... Einnig ætla ég að setja stilla upp fullt af fólki, allt með snuð nema einn gaur sem er með staf eða göngugrind... einnig fara í skóbúð og raða saman fullt af nýjum skóm en skella svo einum gömlum strigaskó inná milli... Basicly ég er 7-8 árum eldri en allir í bekknum mínum nema 3 gaurar (munar samt 4, 5 og 6 árum)... Samt, mismunurinn fyrir að vera Íslendingur og þau kanadísk er það mikill að aldursmunurinn breytir skyndilega ekki neinu... Efast um að ég myndi hanga eins mikið með 17-18 ára íslenskum "krökkum"...
Búinn að taka viðtalið... gékk mjög vel... Svo tók félagi minn viðtal við mig... gékk líka vel... Við keyrðum um á hraðbrautinni til Toronto og annars staðar þar sem hann tók viðtalið við mig... Hann er með þennan fína radarvara í bílnum sínum... Það er hinsvegar ólöglegt að vera með radarvara og löggan er nefnilega með radarvaraskynjara... En það er allt í lægi því hann er með líka innbyggt í radavaranum radavaraskynjarafelara... En sumar löggur eru komnar með radavaraskynjarafelaraskynjara... Sem betur fer er hann með nýjan radarvara með radarvaraskynjarafelara því þar er líka radarvaraskynjarafelaraskynjarablekkjari...
Hvað mun þessi þróun halda lengi áfram...?
Hvað mun þessi þróun halda lengi áfram...?
mánudagur, október 27, 2003
Er að fara til Toronto í kvöld að taka stutt viðtal fyrir verkefni í skólanum... Viðtalið má vera eins lengi og ég vill en ég tek svo bara bestu 60-90 sekúndurnar úr og skila inn... Lykilatriði er áhugaverð menneskja, áhugaverð frásögn og svo á bakgrunnurinn / sviðsmyndin / klæðnaðurinn / leikmunir að vera eitthvað tengt manneskjunni og frásögninni...
Ég ætla að tala við gamlan Vestur-Íslending. Hann er þriðja kynslóð hreinræktaður Vestur-Íslendingur og heytir Don Gíslason. Ég ætla að spurja hann um ferðir 2000 Íslendinga til Norður-Ameríku og upphaf bæjarins Gimli. Ætla að hafa hann í lopapeysu, með íslenskan fána í bakgrunninum, íslenska hluti á borðinu og svoleiðis... Ekkert mál að fá hann til að byrja að tala... það verður erfitt að láta hann hætta... Vona ég sé með nóg af spólu...
Eftir þetta ætlar skólafélagi minn að taka viðtal við mig, um mig eflaust... Nú er bara spurning hvaða sögu ég get sagt undir 90 sekúndum... Ekki íssöguna allavega...

Rannsóknin um "týnda" afmælisúrið heldur áfram... Talaði við TNT hraðflutninga í dag og þau gerðu leit og ráku ferð pakkans afturábak... Ég fékk svo símtal og núna flækist málið...
Úrið var horfið áður en tollurinn í Kanada opnaði pakkann... Dunn dunn duuunnnnn!!!
Er kannski meira spennandi ef ég skrifa "Úrið var horfið áður en tollurinn í Kanada opnaði pakkann" (færði italisized um orð).
Úrið var "horfið" áður en tollurinn í Kanada opnaði pakkann... Perfect...
Núna þarf að tala við TNT á Íslandi líka og rekja þetta í rétta átt þaðan...
Hvort haldiði að finni úrið á undan, TNT U.S.A. eða Ísland?

Ég má til með að minnast núna aðeins á ameríska fávisku... Ég vill ekki kalla þetta heimsku því það er niðrandi... Ég er nefnilega búinn að heyra mjög heimskulega, ég meinti fáviskulega hluti frá félögum mínum hér...
Einn þeirra var mjög "impressed" að vita að ég kann á 24 tíma klukkur... NO JOKE...!!! Ég var að skrifa einhverja tímasetningu niður og gerði 18:00... Hann horfi á þetta og sagði hissa: "You really know how to use that time system...?" Bætti svo við: "So when does it, you know, like change and you count again from one and stuff...?" Ég reyndi að kenna honum kerfið en honum fannst það allt of erfitt... Hann er náttúrulega bara 18 ára.
Svo var annar að tala við mig í dag um þáttinn Fear Factor. Hann hafði einu sinni spurt mig áður:"What's a ram?... Oh, a male sheep...? There are also male sheep? So what's a female sheep...? Oh, sheep..." Hann var að minnast á eina grein úr þættinum þar sem fólk þurfti að borða eitthvað ógeðslegt og sagði: "There were these huge eggs, can't remember what kind. I think they were sheep eggs or goat eggs"
Það var mjög erfitt fyrir mig að halda "straight face" þegar ég leiðrétti hann eins og það væri ekkert sjálfsagðara að rugla saman kindum og strútum, hvað þá eggjunum þeirra... Hann er jú bara 19 ára...
Synd að það eru ekki til svínaegg... Þá fær maður egg og beikon í einum pakka...

föstudagur, október 24, 2003
Búinn að setja inn myndir frá Canada... Á síðunni sem ég vísa ykkur á eru myndir frá Motnreal, myndir af Lindy frænda, myndir af stúdeóinu, myndir af skólasvæðinu og myndir af herbergi mínu... Þetta veitir ykkur kanski smá meiri innsýn inní líf mitt hér... Loksins er eitthvað sjónraænt sem þið getið púslað við texta minn á blogginu... Þessar myndir voru teknar á einnota myndavél og eru því í svona lélegum gæðum... sorry...
Skoðið myndirnar hérna...!
Skoðið myndirnar hérna...!
Orð sem ég sakna og vantar meira af núna í líf mitt... "OFNBAKAÐ"... já... ég hef ekki fengið neitt ofnbakað frá því ég drap niður fæti á þessari heimsálfu... Mér er næstum sama hvað það er... kjúklingur, lasagne, fiskur... you name it... bara eitthvað sem er ekki soðið í örbylgjuofni eða grillað/steikt á grillhellu... mmm... ég læt mig dreyma...
fimmtudagur, október 23, 2003
Lexía sem ég að læra í dag... Ef þú ætlar að spyrja til vegar hérna, vertu viss að leiðbeiningarnar sem þú færð eru ætlaðar fyrir gangandi vegfarandur því annars áætlar fólk að þú sért á bíl... Ég var að leyta að framköllunarstofu sem framkallar "slides" filmur á sólarhring... Ég spurði til vegar í einni búð og gaurinn sagði: "Farðu niður þessa götu þar til hún endar í "T" og þá ertu kominn að Speer street. Staðurinn heytir CPS og er einhverstaðar á þeirri götu..."
Ég labba af stað niður götuna... og labba... og labba... og labba og labba o.s.frv.... Loksins kem ég að "T" staðnum og fer til hægri... er staddur á Speer götu, húsi 1... Þetta er stór fyrirtækjagata... Í hverju húsi eru 10-30 fyrirtæki þannig ég skoða hvert hús vel... ég labba og labba... bla bla bla... í hús 1200 (no joke) í pínu litlum stöfum, í lítilli stofu, aftast og í horninu fann ég CPS...
Til samanburðar þá ímyndaðu þér að þú ert alveg á norðvestur hlutanum af Seltjarnarnesi og spyrð hvar Select bensínstöð er... Maðurinn segir við þig, labbaðu þessa götu meðfram sjónum þar til hún endar á hringtorgi hjá Nóatúni og JL húsinu, beygðu svo þá götu til hægri og labbaðu hana, Select er einhverstaðar á henni (þó svo að Select er við enda bæjarins á Miklubrautinni)...
P.S. Þó verður að skoða vel hvert hús á leiðinni...

Búinn með annað ljósmyndaverkefni og er að fara láta framkalla filmuna... Næst á dagskrá er að taka mjög stutt viðtal við einhverja manneskju... Ég tek viðtal á mánudaginn við Vestur-Íslending að nafni Don Gíslason og mun ég spyrja hann um ferðir Vestur-Íslendinganna til Ameríku og upphaf bæjarins Gimli... Synd samt að þó svo að viðtalið má vera einhverjar mínútur þá á ég að taka bara bestu 90 sekundurnar úr til að skila fyrir einkunn... Það verður örugglega úr nóg að taka...
Afmælisdagur minn verður miklu lengri en ykkar... ligga ligga lái... Á sunnudaginn er fólki nefnilega sagt að setja klukkunar aftur um einn tíma vegna "Daylight Savings Time" (hvað er það aftur á íslensku)... Þannig á sunnudagskvöldi þegar klukkan er rétt skriðin yfir miðnætti, þá bara *daddara* stilli ég klukkuna aftur um heila klukkustund og á afmæli enn á ný... Perfect...
miðvikudagur, október 22, 2003
Hef verið að skoða námsstyrki á netinu... Þvílíkt sorp...! Það hentar ekkert mér...! Af hverju fær bara fólk í rannsóknum, raunvísindum eða lækningum styrki frá íslenskum stofnunum... Listamenn fá líka styrki en þá bara leikarar, myndlistarmenn, tónlistarmenn eða rithöfundar... Enginn hugsar um kvikmyndargerðafólk eða margmiðlunarfólk... Þetta er ekki ódýrt nám sem ég er í, en enginn vill styrkja mig fyrir utan ástkærir foreldrar... Spurning um að skrifa Kvikmyndasjóði Íslands vel ort bréf...
Svei...Held ég sé að verða kvefaður... Það var kvefpest hér fyrr á önninni en ég var eiginlega sá eini sem slapp við hana... En skyndilega núna blossar upp smá vottur af hálsbólgu... Ég var labbandi um og hóstandi, mætti þá litlum dvergi (er nokkuð til stór dvergur) og hann sagði: "I witnessed you might be getting a sore throat"... Jamm, þarna var smá vottur af hálsbólgu minni...
þriðjudagur, október 21, 2003
Halloween er að nálgast... Það virðist vera tekið alvarlega hér... Það er búið að vera Halloween skraut uppi frá byrjun mánaðarins, en ekkert Thanksgiving skraut var sett upp...
Á heimavistinni er komin af stað samkeppni:
"The Corridor Of Gore"
Basicly þá er þetta hurðaskreytingarkeppni... Verðlaun eru 400$ í gjafabréfum en ég veit ekki hvaðan... Fínt ef það væri úr einhverri tækjabúð, bókabúð eða leikfangabúð (that's just me)... eða matvörubúð... þá myndi ég kaupa svo stóra steik að hún yrði að vera samansett úr tveimur beljum...
Er að pæla í hugmyndum... langar að hafa veitingarhús þema... Og maturinn á matseðlinum... Of course (þið vissuð þetta alveg): Íslenskt góðgæti... Synd að eiga ekki hauskúpu (eða tvær) af svið til að hengja á hurðina... Svið er eldaður matur, má ekki senda svoleiðis á milli landa?
Vill einhver senda mér tvo sviðakjamma...? Þið megið jafnvel éta sviðin sjálf og senda bara beinin...! Það yrði awesome...!

mánudagur, október 20, 2003
Mjög lítið að gerast síðustu daga... Tók nokkur próf... Gékk þokkalega í hljóðfræði, vel í verklegri lýsingu og mjög mjög vel í tölvum... Eyddi helginni á heimavistinni með þeim fáu sálum sem ákváðu að vera hér eftir... Það er nefnilega núna "Reading Week", sem er vikufrí frá kennslu sem á að notast í lærdóm, en lang flestir nota tækifærið til þess að fara heim til sín eða ferðast annað... Ég er í svo miklu verklegu að það er ekkert að læra... bara eitt verkefni sem ég þarf að klára... Þarf að finna mér eitthvað að gera... spurning um að þvo þvott í dag til að drepa tímann, svo er það ræktin eftir það og loks mun ég fara á veitingarstaðinn/kránna hér á móti í kvöld til þess að pannta mér 10 risa stóra kjúklingavængi á 35 cent hvert (Chickenwingnight á hverjum mánudegi)... svakalega góð máltíð á bara 3.5 dollara... Svo mun ég og herbergisfélagi minn leygja okkur DVD mynd og góna á hana á stóra sjónvarpinu... Næst á dagskrá, þriðjudagur...
fimmtudagur, október 16, 2003
Skrapp aðein til Toronto í kvöld til þess að sjá Lindy frænda spila á tónleikum... þetta var á svona 500 manna krá... mjög gott kvöld... Ég fékk meira að segja heiðurinn á því að vera kynnirinn hans áður en hann byrjaði... Hann dró mig uppá svið og sagði mér að segja eitthvað við áhorfendur áður en hann byrjaði... Ég var svo hissa, að skyndilega kunni ég bara íslensku...! Mér tókst þó loksins að hrófla einhverju úr mér af viti og Lindy spilaði frábæra tónleika... Ég fór samt strax heim eftir tónleikana til þess að kíkja aðeins á skólabækurnar... Á leiðinni heim fékk ég góða skilgreiningu á kaldhæðni... Að setja upp sölubás með fullt af listaverkum úr sápu sem eru handskorið fyrir framan mann... og að lenda svo í helli helli helli dembu (vægt til orða tekið aftur)...
Þessar tökur voru næturtökur... við vorum að til 3:30 um nóttina í einhverjum skógi 50 mínútur í burtu... Það var svo svakalegt myrkur í kringum okkur... Svæðið var lýst upp með kösturum en oft varð að ná í einhverja hluti lengst í burt og þá fór maður einn rambandi um skóginn með svo lélegt vasaljós að það myndi ekki lýsa upp frímerki þó svo að það væri sentimeter frá því... og svo var einnig helli helli helli demba... og það er vægt til orða tekið... að kalla þetta helli helli helli dembu, væri jafn léleg samlíking og að segja músaprump væri hvirfilbylur... Það var bara þéttur veggur af vökva streymandi niður allan tímann... Svo eftir tökunar slöktu við á kastörunum sem lýstu upp svæðis... þá voru allir í kolniðarmyrkri með lélegu vasaljósin að reyna að ganga frá... Fólk var ráfandi blindandi út um allt, kallandi á hvert á annað í leit að bestu (réttu) leiðinni tilbaka með allan þennan rándýra búnað... Loksins sá fólk smá ljósglætu frá öðru vasaljósi og streymdi þangað til þess eins að fatta að sú manneskja var líka týnd... En loksins hafðist það og allir komust heilir á húfi tilbaka...
Ég ætla gera þetta aftur fimmtudagsnótt... nema í þetta skiptið frá 2:00 um nóttina til dagsbirtu... don´t ask me why... Þetta var bara svo gaman...
Ég ætla gera þetta aftur fimmtudagsnótt... nema í þetta skiptið frá 2:00 um nóttina til dagsbirtu... don´t ask me why... Þetta var bara svo gaman...
Þvílíkar tökur í gær... Ég fór klukkan 18:00 á tökustað á mynd sem þriðja árs nemar voru að gera... Við vorum nokkrir fyrsta árs þar til að hjálpa til, allir voru ljósamenn en ég var valinn til að vera 2nd A.C. sem er "annar aðstoðar tökumaður"... Ég sá þá um að flytja myndavélina á milli staða og svoleiðis og... besti hlutinn... Ég var manneskjan með "klappspjaldið"... Ég var að vísu full spenntur fyrst, klappaði alltaf of snemma... Það er sérstakt ferli sem fer í gang þegar tökur byrja...
Aðstoðar leikstóri: Quiet on the set... Roll sound...!
Hljóðmaður: Sound speed...
Ég: Scene 5, Shot 8, Take 1 *klapp* (ég hleyp eins hratt og ég get úr skotinu)
Úbbs, of snemma í þetta skipti... Reynum aftur...
Aðstoðar leikstóri: Quiet on the set... Roll sound...!
Hljóðmaður: Sound speed...
Ég: Scene 5, Shot 8, Take 1
Aðstoðar leikstjóri: Roll camera...!
Ég: *klapp* (ég hleyp eins hratt og ég get úr skotinu)
Úbbs, ennþá of snemma... tilraun 3...
Aðstoðar leikstóri: Quiet on the set... Roll sound...!
Hljóðmaður: Sound speed...
Ég: Scene 5, Shot 8, Take 1
Aðstoðar leikstjóri: Roll camera...!
Myndatökumaður: Camera rolling...
Ég: *klapp* (ég hleyp eins hratt og ég get úr skotinu)...
Yes...! Allt er þá þrennt er... *klapp**klapp**klapp*...!!!

þriðjudagur, október 14, 2003
Úff, það hafðist... Tímnn var alveg að hlaupa (á harðaspretti) frá okkur, en okkur tókst að klára... Fyrsta auglýsingin sem ég leikstýri hér búinn... Nú þarf ég bara að redda afriti til þess að setja á netið fyrir alla heima... Við byrjuðum klukkan 7:00 í morgun að klára það sem þurfti að klára... Ég sjálfur vaknaði klukkan 5:00 í morgun (sofnaði klukkan 4:00) því fólk sem býr lengra í burtu var að hringja í mig vegna spurninga út af tökunni...
Ég talaði við kennarann eftir tökurnar og hún hrósaði okkur óspart því okkur tókst að hrista þetta úr erminni á síðustu stundu... þetta var nefnilega flóknasta auglýsingin af öllum (monnt, monnt) og með hugvitsemi minni var hægt að gera þetta í einni samfeldri töku á 29 sek. Mjög gott...
Núna ætla ég aðeins að leggja mig og safna kröftum (ég er að vísu alltaf fullhlaðinn hér) því ég ætla að hjálpa nokkrum annars árs nemum í kvöld og framm eftir til 7:00 um morguninn með þeirra tökur, þannig ég sé hvernig hlutunum er háttað á næsta ári og kem betur undirbúinn...
Ekkert mál að vaka svona legni... Ég er nú þegar búinn að snúa sólarhringnum svo svakalega við að úrið mitt gengur afturábak...

Magnað hvað er létt að búa til flottann regnboga í ísskápnum sínum... Maður býr bara til Kool-Aid fimm sinnum í röð í fimm mismunandi litum og skrúfar lokið aldrei neitt sérlega fast á könnuna sem geymir það... mikilvægt er að geyma hana svo á hliðinni... Instant Rainbow...!
Var að setja upp sviðsmyndina mína í allan dag og stilla lýsingu... Byrjuðum klukkan 15:00... Við vorum frekar snöggir að negla upp nokkra veggi og raða sviðsmunum um... en lýsingin... úff... það er ólýsanlegt hvað þetta var "ólýsanlegt" (bókstaflega)... Ég náttúrulega var með flókknustu sviðmyndina af öllum auglýsingunum sem voru gerðar... Virðist vera einföld á myndunum sem ég set á netið (um leið og ég klára filmuna (Já, Montreal ferðin er líka á filmunni))... Við kláruðum loksins klukkann 23:30 um kvöldið...
Þetta var mjög gaman og ég lærði mikið... mér fannst alltaf tveir gaurar þarna vita meira en ég um lýsingu því þeir höfðu þegar lýst einu sinni áður sína auglýsingu vikunni áður, en þeir treystu mér fullkomnlega sem leikstjóra með mína sýn og vildu taka engar ákvarðanir, þannig ég lærði hvað átti að gera með því að stýra öllum eins og mér fannst rétt... sem ég gerði, og allt er fullkomið (eða eins fullkomið og hægt er fyrir fyrstu tilraun)...
Á morgun byrjum við klukkan 7:00 um morguninn að fínpússa skreytingar á sviðsmyndina og svo eru tökur til 11:00... Gangi mér vél...

mánudagur, október 13, 2003
Góð helgi í Toronto... Spókaði mig einn um bæinn áður en ég hitti Sigrúnu Stellu, vinkonu svilkonu minnar... þannig basicly ég hitti vinkonu, systir, eiginmanns, systur minnar... Það þarf ekki meira til að tveir íslendingar hittast, ég meina ég er að hanga með barna barna barni bróður langa langa afa míns eins og við værum náfrændur...
Ég fór heim til systir hennar sem á kanadískan eiginmann í kvikmyndagerð. Svo fórum við út á lífið. Fyrst vorum við á einhverri venjulegri krá að bíða eftir vinum hennar en svo var farið í það sem ég hélt að væri vöruhús... Við gengum inn um eitthvert húsasund milli stórra iðnaðarhúsa og inn einhvern inngang... þá var ég kominn á risa stórann skemmtistað sem heitir Devil´s Martini og er flottari en nokkur sem ég hef séð heima... Leit út eins og fancy hótel...
Á laugardeginum spókaði ég mig aftur einn um Toronto og lagði leið mína í Kínahverfið því mig hungraði í góða kínverska máltíð (náttúrulega)... Ég gékk framhjá hverjum gómsætum stað á fætum öðrum uns einn kallaði á mig... kvakaði á mig í rauninni, því í glugganum hékk gljáandi brún grilluð önd... Ég fer inn og panta mér fyrst bestu súpu sem ég hef fengið á svona stað, eggdrop soup with minced beef... svo fékk ég mér hálfa grillaða önd... hún var svoooo góð... En hún var skorinn í fullt af bitum og hver var með slatta af litlum beinum... ég stóð á öndinni... ég hefði getað púslað saman tvær endur úr leifunum sem ég týndi út MJÖG varlega... Samt, betra að standa á öndinni heldur en að láta öndina standa í sér...
Um kvöldið fór ég svo í "reception" fyrir nýkomna Íslendinga þar ég ég hitti fullt af bæði íslensku mælandi Íslendingum og Vestur-Íslendingum... Svo fór ég út aftur með Sigrúnu Stellu sem travel guide, að þessu sinni að það sem ég hélt að væri kirkja og í raun var kirkja en er nú skemmtistaður sem heitir Revival... Það var góð tónlist því það var Flashback kvöld, en það hefði aðeins mátt minnka bassann... Það var svo svakalegur bassi að allt hristist og skalf... einn gaur bað um "stirred" Martini en fékk bara "shaken" þegar glasið stóð á barborðinu...
Á sunnudeginum fór ég til félaga míns í hinum enda bæjarins, sem skutlaði mér tilbaka því ég tók hann í smá kennslu í tölvutíma... Ég ferðaðist samt annars alla helgina út um allt í neðanjarðarlestum því þær koma manni næstum hvert sem er á góðum tíma... Ég fannst ég eyða meiri tíma neðanjarðar en moldvarpa með víðáttufælni...
Fín Thanksgiving helgi þó svo að ég fékk ekki kalkún, en samt það er ennþá innan marka að fá kalkún á morgun... sjáum hvað ég get gert...

sunnudagur, október 12, 2003
Eins og beðið var um gerði ég óskalista... Ég var að setja upp óskalista á Amazon.ca... ATH. Amazon.ca = Amazon í Canada, þannig fluttningurinn er ódýrari... Þetta er ekki Amazon.Com heldur .CA... Einnig er gengið á Canada dollurunum allt annað... Ég er búinn að setja heimilisfangið mitt á Amazon.ca þannig er þið notið það fer pakkinn á réttan stað. Einnig ætla ég að setja heimilisfangið mitt á bloggið mitt því ég væri til í að fá föt að heiman svo sem buxur eða boli, og svo náttúrulega kort...
Ragnar Eythorsson
Trafalgar Road Campus, Room 218
1430 Trafalgar Road
Oakville, Ontario
L6H 2L1
Canada
Telephone: (905) 617-4878
Núna getið þið getið því sent *hóst*harðfisk*hóst* hvað sem er *hóst*nóasiríus*hóst* sem ykkur dettur í hug til mín *hóst*súkkulaðihjúpaðansportlakkríssemfæstíKolaportinu*hóst* til Canada... Ahem... skil ekki hvað er að hálsinum á mér *hóst**hóst*...

föstudagur, október 10, 2003
Þessa helgi er Thanksgiving... Veit ekki af hverju Canada menn halda uppá það svona snemma... Það er ekki eins stór hátíð hér og í Bandaríkjunum... Ekki mikið um skreytingar og svoleiðis... Það virðist vera mestmegnis Halloween skreytingar... Þetta er hinsvegar þriggja daga helgi með mánudeginum... Nú verður gerð dauðaleit að kalkúni... Það hlýtur að vera einhver veitingarstaður með kalkúnartilboði með öllu tilheyrandi... hvað er það aftur... gravy, stuffing, jams, taters, cranberrysause... mmm... Félagi minn bauð mér að vísu í heimabæ sinn yfir helgina til að halda uppá Thanksgiving með fjölskyldu sinni en ég mun hitta svo mikið af Íslendinum um helgina að ég hafnaði því góða boði (ég hefði hvort sem er ekki fengið legginn (inside joke))...
Svakalega getur einn poki af makkarónum dreyfst yfir stórt svæði... "Kústur" hefur hér með færst 37 sæti upp á innkaupalistanum... "Fægiskófla" fór aðeins upp um 12 sæti... léttara að bjarga svoleiðis með smá improvise...
miðvikudagur, október 08, 2003
Mikið er gaman að vera Íslendingur hér... Það er stór tækjaleiga hér sem við höfum aðgang að endurgjaldslaust og þar er á meðal upptökuvélar, þrífætur, hlóðupptökutæki, míkrafónar, alls konar snúrur, ljós, standar og margt fleira... Sumt fær maður ekki að nota fyrr en á öðru ári og þá aðeins ef þú valdir sérstakann kúrs... Þar á meðal eru 16mm upptökuvélar...
Hinsvegar sagði mér einn eldri nemi að mjög MJÖG mikilvægt er að vingast strax við manninn í tækjageymslunni því þá er léttari að fá greiða og kanski skila tækjum aðeins seinna en aðrir... Hann er nefnilega mjög strangur á útlán hvað varðar tíma og hvert tækin fara og hvað þau eru notuð... Tækjagaurinn komst að því að ég væri Íslendingur og við spjöllum alltaf saman þegar ég kem... Núna áðan spurði hann hvort ég vildi taka 16mm tökuvél með mér til ÍSLANDS...! Yfir ALLT jólafríið...!!! Spurði hvort ég myndi taka eitthvað upp af landslaginu og svoleiðis... Ég varð orðlaus af undrun... fyrsta árs nemar mega ekki nota tækið, og fyrsta árs nemar mega heldur ekki hafa neitt lengur en í einn dag... þetta er vél sem ég hef ekki einu sinni lært á né neitt sambærilegt tæki... ég held að þetta sé fordæmalaust tilfelli... Núna er spurning hvort ég treysti mér til að taka þessu glæsilega tilboði...

Jæja, ég fæ loksins að tala móðurmál mitt þessa helgi, og mikið af því...
Á föstudaginn er mér boðið í mat heim til vinkonu svilkonu minar sem er náttúrulega íslensk (vinkonan og svilkonan)... Svo á laugardaginn er "reception" fyrir Íslendinga sem eru nýkomnir til Kanada (þar á meðal mig) og þar mun ég hitta enn fleiri Íslendinga og Vestur-Íslendinga sem kunna margir ekki meira sn "Skál" en það dugar mér alveg...

þriðjudagur, október 07, 2003
Núna vantar mig hjálp með að finna eitt lag... í raun finna nafnið á því og þá get ég fundið það... Málið er að þetta er sígillt tónlistarverk... gæti verið úr ballet jafnvel... Þetta er mjög svo oft notað yfir morgunsenum í kvikmyndum og sérstaklega teiknimyndum eins og Mikki Mús eða Bugs Bunny... Þetta lag er aðallega á flautum og að ég held fiðlum þegar það byrjar... oft er fuglatíst í bakgrunninum... Þið vitið eflaust hvaða stef þetta er... núna er bara að muna hvað það heytir... það myndi hjálpa mér svakalega...
Mikið hefur herbergisfélagi minn mikið álit á skoðunum mínum... Hann er listamaður með chaotískan stíl en ber öll verk sín undir mig, hvort sem það er teikning, málverk eða (og sérstaklega) skriftir... Hann er að þróa "kenningu" um list og er smám saman búinn að móta hana hér og skrifa fyrirlestur sem hann þarf að flytja á listasýningu í Toronto... Málið er að hann vitnar beint í mig á mörgum stöðum yfir einhverju rugli sem ég svaraði í blindni þegar ég vissi ekkert hvað ég átti að segja... hann var basicly að tala eitthvað bull um list og ég var annars hugar hugsandi "svakaleg vitleysa er þetta í honum", en svo bjóst hann við einhverju svari og ég sagði eitthvað "Well, it's like... (insert clever comment here)" og hann gáfti á mig, náði í skrifblokk og skrifaði það allt niður... Svo setti hann tilvitnina í fyrirlesturinn sinn á milli tilvitna frá Oscar Wilde og Shakespear (William)... Þetta hefur komið fyrir nokkru sinnum en ég man ekkert hvað ég sagði... vanalega því ég hef tilhneygingu til að segja svo mikla vitleysu yfirleytt að ég get ekki haldið utan um það...
Að vísu man ég eina setningu sem mér fannst frekar clever... Hann sem chaotískur listamaður segir að maður getur ekki skipulagt góða list... maður bara vinnur og kanski kemur eitthvað gott úr þessu... Þá segi ég: "It's like planning your sex and expecting to have the perfect child from it"... Þetta er speki...

Er að fara á sérstakt auka námskeið í kvöld sem kallast "Fall Arrest Training"... veit ekki af hverju það heytir það... Basicly maður lærir (No Joke) að klifra stiga rétt... Þetta er vegna þess að til að setja upp ljós í stúdeóinu þá notum við stóran stiga og ef við erum ekki með þetta skirteini sem við fáum í kvöld verðu næstu ár erfið... Þetta skirteini dugar mér alla ævi þannig að ef ég sæki um vinnu í stúdeó tek ég fram að ég kann að klifra stiga (mjög miklvægt víst í N-Ameríku)... Magnað að þurfa taka svona námskeið... Það er bara vegna þess að þegar ég lærði að klifra stiga fyrr en meira en 20 árum síðan þá fékk ég ekki skirteini frá foreldrum mínum...
Ég er að drukkna í kortum síðan ég kom í skólann... það er kort út af öllu... Fyrir utan debetkortið mitt og ökuskirteiniskortið frá Íslandi, þá fékk ég við komu mína á heimavistina lyklakort í herbergið mitt, kort í þvottavélarnar, svo fékk ég skólaskirteinakort, svo lyklakort til að komast í stúdíóið, svo kort til að geta tekið út tæki og snúrur, ég fór að leygja vídeó og fékk þá Blockbuster Video kort, ég fékk nýtt SIM kort í síma minn, geymi samt gamla SIM kortið mitt, keypti svo símakort sem leyfir mér að hringja ódýrara úr öðrum símum, fékk svo sérstakt kort frá eiganda skólakránnar sem segir að ég sé eldri en 19 ef dyraverðinnir skilja ekki íslensku skilríkin, á Subway fékk ég náttúrulega kort, einnig boðskort á skemmtun, í Montreal fékk ég VIP kort, svo er ég búinn að fá kort frá Íslandi (besta kortið!), loks á ég afmæli í mánuðinum (26. okt.) og fæ þá afmæliskort (vonandi)... Já! Og í kvöld fer ég á námskeið og fæ skirteiniskort út af því...
... og desember nálgast óðfluga með... JÓLAKORT...!!!
... og desember nálgast óðfluga með... JÓLAKORT...!!!
Búinn að vera tka upp röddina fyrir útvarpsauglýsinguna í allan dag... Við notumst við mína rödd því hún virðis ver a frekar góð og einnig er mikilvægtaðégtalimjöghratt! Núna er ég aumur í hálsinum því ég á erfitt með að finna hljóðbrellur. Ég er búinn að vera jarma eins og kind hundrað sinnum, jarma eins og hrútur jafn oft og svo öskra enn oftar... Þetta ætti að skila okkur nógu miklu hráefni til þess að klippa auglýsinguna saman... Sú stund verður miðvikudagskvöld klukkan 22:00-1:00...
Nú hefst leit af hljóðbrellum fyrir goshver að gjósa og haglabyssu að skjóta... Ég gæti reynt að herma eftir goshver en ég myndi bara frussa yfir allt herbergið mitt...
Nú hefst leit af hljóðbrellum fyrir goshver að gjósa og haglabyssu að skjóta... Ég gæti reynt að herma eftir goshver en ég myndi bara frussa yfir allt herbergið mitt...
mánudagur, október 06, 2003
Hef tekið eftir því að ég verð að fara nota gleraugu aftur... Ég er orðin oft mjög þreyttur í augunum sökum lesturs á næturnar, vinnslu á dökkum tölvuskjá og svo sérstaklega að glósa í myrkvuðu herbergi meðan verið er að sýna kvikmyndir... Bara eitthvað ódýrt dugar mér... Synd að ég hef ekki helsta gleraugna tískuráðgjafa minn hér mér til aðstoðar, Sössu systir...
laugardagur, október 04, 2003
Ég er orðinn snillingur á að nota þetta "grill" í eldhúsinu... Hef ekki brennt mat í langan tíma... Síðasta "fiaskó" næstum því bræddi úr reikskynjaranum... Er loksins að borða mat sem hefur annað bragð en "kol"... eða "maccarony and cheese"... synd að meðlætið er ekki upp á marga fiska... að vísu er aðalrétturinn bókstaflega ekki upp á marga fiska... aðallega kjúklingur eða hakk... Það er tími til kominn að finna ódýran sushi stað...
Ég var valinn til þess að leikstýra útvarpsauglýsingunni líka... Kærar þakkir fær Robbi félagi minn fyrir að senda mér íslenska tónlist... Máninn hátt á himni skín... gott undirspil sem ég mun nota... nema einhver gerir enn betur... Svo set ég náttúrulega auglýsinguna á netið fyrir ykkur...
fimmtudagur, október 02, 2003
Mig dreymdi í nótt eins og vanalega einhverja vitleysu... en á einum stað í draumnum var ég í handritstíma og var að hlusta á Wish You Were Here með Pink Floyd... Þá kom kennarinn og bað mig um að láta hann fá afrit af laginu... Þetta var svo rosalega venjulegar aðstæður í draumnum að ég hef á tilfinningunni að hér sé Deja-Vu í uppsiglingu... Ég vill því blogga um þennan frekar boring draum svo ég get sagt eftir einhverjar vikur (eða mánuði)... Hey, muniði þegar ég bloggaði um drauminn sem gerðist í handritstíma... Jæja, Deja-Vu... loksins staðfesting um... svei, hvað er orðið... ekki "skyggn"... um... precognistic (hvað er það á íslensku)...
Útvarps auglýsingin mín um veitingarstaðinn var valinn til framleiðslu... Spurning hvort ég fæ að leikstýra henni fyrst ég er nú þegar að leikstýra sjónvarpsauglýsingunni... Hún verður að vera til í næstu viku þannig nú skal vinna hratt... Mig vantar núna að finna tónlist eins og er í svona víkingamyndum en það er mjög erfitt held ég... ef ekkert finnst nota ég polka (!) og ég vill varla þurfa að leggja það á nokkurn mann að hlusta á það...