<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, maí 30, 2005

Spakmæli dagsins:
31/05/05: Tjöld skal tjalda ef hita skal halda...
Spakmæli dagsins:
27/05/05: Hamingja færir manni meiri heppni en hvað heppni færir manni hamingju...
28/05/05: Það þarf meira en logandi lendur til að bræða kynköld klof...
29/05/05: Raunveruleika sjónvarp er þegar í raun er verið að leika...
30/05/05: Þær sem helda þær séu fallegar fara í fegurðarsamkeppni. Þær sem vita það þurfa þess ekki...

fimmtudagur, maí 26, 2005

Spakmæli dagsins:
26/05/05: Sælli er sá sem lifir stórt á litlu en litið á stóru...

miðvikudagur, maí 25, 2005

Spakmæli dagsins:
25/05/05: Það er jafn erfitt að vera dvergur í gólfi og tröll í minigólfi...

þriðjudagur, maí 24, 2005

Spakmæli dagsins:
21/05/05: Gott að vita af tapinu til að tapa ekki vitinu...
22/05/05: Aldrei skal dæma prump út frá rassinum...
23/05/05: Betra er eitt skot á leið niður en fjögur á sömu leið út...
24/05/05: Kúgaður kall að degi er geldur að kveldi...

föstudagur, maí 20, 2005

Það er náttúrulega augljóst af hverju Ísland komst ekki áfram í Euróvision... Það var svindlað á okkur... Það var löngu búið að skipuleggja þetta...
Málið er, að fyrir einhverjum árum þá voru til austur evrópskar þjóðir sem voru algjörlega ömurleg í Euróvision... og ráðið sem þeim datt í hug, var að skipta sér í fleiri minni þjóðir, þannig þeir fengu miklu fleiri atkvæði fyrir sín lög og þvínga svo öðrum keppendum í burtu... Þess vegnaði byrjaði byltingin... til þess að fá fleiri Euróvision stig og taka yfir keppnina...!
Járntjaldið féll ekki... Það var dregið frá þegar söngleikurinn hófst...
Spakmæli dagsins:
20/05/05: Ekki leggja í vana að vanhelga helgar helgar...
Í fleiri fleiri ár hef ég verið að fela eða neita einni staðreind... þá sérstaklega á þessum tíma árs... Euróvision tímanum...
En mér finnst tími til kominn að ég haldi þessari staðreynd fram og sé stoltur af henni...
Árið var 1991... Það var vor... Stebbi og Eyvi voru að gera góða hluti með "Draumur Um Nínu"... Í skóla mínum var þemaverkefni um umhverfið... Við skólalok voru 12 ára bekkurnir með skemmtiatriði handa foreldrunum... Það voru vöfflur líka... Ég bakaði (Mmmmmm)...
Það vantaði eitthvað skemmtiatriði frá mínum bekk sem tengdist umhverfinu... Litlir leikþættir voru tilbúnir en það vantaði eitthvað stærra... punktinn yfir "i-ið" til þess að enda skemmtunina... Ég tók mig þá til og samdi nýjann texta við Euróvision lagið okkar... Þá varð til lagið "Mengun"...
Tveir bekkir tóku sig saman til þess að flytja þetta í enda kvöldsins... og það var varla sekúndu eftir að þetta kláraðist, að mér fannst þetta vera hallærislegasta fyrirbæri sem komið hafi á sjónarsviðið... ég dauð skammaðist mín svo svakalega fyrir þetta að hrollur lék um mig við það eitt að heyra nafnið "Nína"...
Öll þessi ár hef ég litið niður á þetta verk mitt... Þessa texta smíði... En nú er kominn tími til þess að hætta því... Ég meina, ég var bara 12 ára... og þarna sameinaði ég skólann í söng við Euróvision... Þetta kom meira segja fram í Sjónvarpinu (Fólkið Í Landinu)... Plús það hafa komið margfallt verri Euróvision lög síðan þá...
Fínnt... Þannig nú fel ég ekkert lengur... Ætla að setja þetta hreint og beint út... Maður flýr ekki fortíðina heldur fagnar henni... Kanski var þeta mikilvægt skref í skáldaferli mínu...
Ætli ég muni textann eftir öll þessi ár...?
*hóst*... OK... Munið... Ég var bara 12 ára... og umhverfið er mikilvægt...

"Mengun"

Núna ertu hjá mér... Megnun...
Viltu fara frá mér... Mengun...
Ég vil ekki vera hjá þér... Mengun...
Því þú veit að ég vil aldrei aftur...
Ég vil aldrei aldrei aftur...
Aldrei aftur eyða stund með þér...

Lítið uppí loftið... Mengun...
Lítið útí sjóninn... Mengunn...
Hvaða lykt er þetta...? Mengun...
Því ég veit að þú munnt alltaf reyna...
Þú munnt alltaf alltaf reyna...
Alltaf reyna þynna lofthjúpinn...

Munum við í framtíðinni endurvinna pappírinn...
og glerflöskur þær fara í sjoppurnar...
Því að jörðinni við viljum halda hreinni hér...

Er ég vakna...
Mengun því miður ertu ennþá hér...
Nudda augun...
Því ég tárast að vera lengi út í þér...

Þetta verður allt að bæta...
Gera jörðina aftur sæta...
og hreinsa allan heiminn á nýýýýý...!

Munum við í framtíðinni endurvinna pappírinn...
og glerflöskur þær fara í sjoppurnar...
Því að jörðinni við viljum halda hreinni hér...

Er ég vakna...
Mengun því miður ertu ennþá hér...
Nudda augun...
Því ég tárast að vera lengi út í þér...

Er ég vakna... OH!
Mengun því miður ertu ennþá hér...
Nudda augun...
Því ég tárast að vera lengi út í þér...


Jamms... Þetta var mikill léttir að koma þessu frá mér... Trúi ekki að ég mundi allan textann... Gæti verið ein, tvær villur í þessu, en svona í heildina þá var þetta einhvernveginn svona...
Var þetta nokkuð svo agalegt...? Þurfti ég að vera eitthvað að skammast mín yfir þessu...? Þetta var samt ekki sérlega vel sungið, en það sleppur líka...
Æj já, svo urðu allir að gera einhverjar svona hreifingar við allt lagið til að tákna textann... Einhvert hallærislegt handapat sem einhver bjó til við lagið... ... ... Nei... Hvern andsk*****.... Ég var að muna ég bjó það til líka... Allar bévítans hreyfingarnar... aaargh... bjakk... usss...
Nei... Gleymið þessu... þetta gerðist aldrei... Vorið 1991 var ekki til.. við vorum öll sofandi... Þetta var bara draumur... bara draumur... draumur um mengun...

fimmtudagur, maí 19, 2005

Spakmæli dagsins:
19/05/05: Það er stutt í stubb með munngælur frá mannætu...
Var að sjá myndband Selmu með Eurovision laginu... Ég er ekki frá því að einhver hafi lekið handriti mínu til hennar... Ekki það að ég sé eitthvað mikið að skrifa handrit sem eru passleg fyrir Eurovision lög, þá eru vissir svona hlutir sem ég sé að eru algjörlega hnupplað frá mér... Vissi ég hefði ekki átt að senda afrit yfir netið...
Ég ætla samt ekkert að fara mikið nánar út í hvað það er sem hún stal frá mér... Þið verðið bara spyrja mig í egin persónu... Vill ekki láta meira leka út... plús ég held að Makedónia sé að leita að myndbandsefni fyrir næsta ár...

miðvikudagur, maí 18, 2005

Spakmæli dagsins:
18/05/05: Það er eitt að vera úti, annað að verða...

þriðjudagur, maí 17, 2005

Spakmæli dagsins:
14/05/05: Áhorfendum kennir íllur ræðuhaldari...
15/05/05: Iðja tómra stunda er ekki tómstundariðja...
16/05/05: Það er erfitt val á milli að vera barinn af sleggju eða sleggjudómum...
17/05/05: Tjútt á túlipönum er öruggara en dans á rósum...

föstudagur, maí 13, 2005

Spakmæli dagsins:
13/05/05: Lán í óláni er betra en ólán í lánum...
Hvað er að umferðinni hérna... Ég fór í smá bíltúr og það var eins og fólki væri annað hvort blint, geðveikt, brjálað eða oftast óheilbrigð blanda af öllu saman...
Þvílíka andfélagslega hegðun á götum hef ég aldrei séð áður (þ.á.m. í tölvuleikjum)... Fólk tróð sér í glufur fyrir framan mig sem ég myndi ekki smeygja túkalli og urraði svo á mig þegar ég vonaðist eftir lítilli "takk fyrir" veifu... Svo voru risa vörubílar í stórsvigi milli akreina á háannatíma á svo miklu spani að ég myndi velta go-kart bíl að reyna það sama...
Kanski er það vegna þess að ég hef ekki keyrt í nokkra mánuði... eða kanski er það því ég er fastur á Bylgjunni eða Létt 96,7... en umferðar(lá)menning hér er mér ekki að skapi... Ég virðist vera eini maðurinn sem veifar... Endaði með lögreglufylgd heim því einu manneskjunar sem þeir sjá veifa í bíl eru konungsbornar þannig það var létt að rugla okkur saman...
Spurning bara að veifa með færri puttum næst til að falla í hópinn...

fimmtudagur, maí 12, 2005

Spakmæli dagsins:
12/05/05: Gefðu sveltandi manni fisk og hann borðar. Kenndu sveltandi manni að fiska og hann fær frið frá konunni nokkrar helgar á ári...

miðvikudagur, maí 11, 2005

Spakmæli dagsins:
05/05/05: Of seint í spekina gripið þegar allt er komið í bækurnar...
06/05/05: Öl er æði nema í ölæði...
07/05/05: Fæstar ábyrgðir hafa minnstu orðin...
08/05/05: Betra að segja "Ég dái dýr naut" frekar en "Ég naut dádýrs"...
09/05/05: Slæmt vera með tengdamóðir tengda móðir manns í ætt...
10/05/05: Það hæfir öllum að alhæfa...
11/05/05: Fáir eru fjölhæfir, fleiri sérhæfir en flestir einhæfir...

þriðjudagur, maí 10, 2005

Hvað er málið... Ég er búinn að vera hér í viku, og nú þegar er búið að snjóa á mig þrisvar en svo á laugardaginn var ég allan daginn í sólbaði...
Enginn sagði mér það væri búið að breyta gamla "brandaranum" *hóst**hóst* um Ísland: "If you don't like the weather, just wait 15 minutes" niður í 10 mín...

miðvikudagur, maí 04, 2005

Spakmæli dagsins:
04/05/05: Ekki á barnabókarhöfundur auðveldara með að barna bókarhöfund...
Fór til tannlæknis í gær til þess að laga fyllingar sem duttu úr meðan veru minni í Kanada stóð... Það þurfti að bora svona all svakalega til þess að ná allri gömlu úr, hreinsa og svo setja nýja í... Fannst tannsa því nauðsynlegt að deyfa mig... og svona all svakalega...
Ég veit ekki hvort ég myndi kalla þetta deyfingu frekar heldur að hann sprautaði körfubolta í kjálkann á mér og blés hann upp með loftþrýstidæli... Svo bólginn var maður...
Náttúrulega eftir að hafa troðið 37 mismunandi tækjum og tólum í kjaftinn á mér (þ.á.m. skiftilykli, GPS tæki og Mulimex þeytara) og þegar hálft andlitið var lamað (nema boraða tönnin) þá spurði hann mig spurningu sem mér fannst mikilvægt að svara...
"Er þetta vont...?"
Ég reyni að tjá honum að víbringurinn í bornum veldur eymslum, en náttúrulega þá er "víbringur" efst á lista mínum yfir orð sem ekki er hægt að segja með 37 mismunandi tæki og tól í kjaftinn á mér...
Ég gafst upp og hélt bara áfram að horfa á kvikmyndina... Það nefnilega vill svo til að hann er með DVD gleraugu... Þú setur þau upp og smellir disk í tækið og horfir á meðan tannsi þjösnast á þér...
Það gaf myndinni pínu meiri dýpt að horfa á hana hjá tannsa... Ég var nefnilega að horfa á Bridget Jones Diary (ekki mitt val), og akkúrat stundin þegar hún var að vaxa á sér leggina og reif það af, þá hitti tannsi svona verulega á taug... Þannig maður fann þjáningu á sama tíma og hún... Hver þarf þrívídd þegar maður upplifir sömu tilfinningu og aðalpersónan...
Þetta var annars fín (en dýr) ferð til tannsa... Gott samt að hann setti ekki Briget Jones 2 í... Þá hefði ég verulega þjáðst...

þriðjudagur, maí 03, 2005

Spakmæli dagsins:
30/04/05: Betra að sigra að lokum en að loka á sigra...
01/05/05: Það er eitt að raula langt ferðalag, annað að taka það...
02/05/05: Glataður farangur er glataður farar angur...
03/05/05: Þótt hugurinn flakkar um heiminn er hjartað alltaf heima...
Frábær síðasta helgin mín úti...
Var vel hvíldur á föstudaginn áður en allt fór í ganga á The M.A. Awards, sem var verðlauna afhending sem haldin er árlega... Hægt var að horfa á hana á netinu og ég veit að það gékk vel hjá sumum en heyrði það var bras hjá öðrum...
Þvílík stemmning í salnum sem magnaðist með hverri mínútu og var þvílíkt gaman að heyra og sjá viðbrögð fólk við minni vinnu...
Eins og fólk veit þá lagði ég einmitt mjög mikið á mig til þess að gera þetta vel, og uppskar ég því sem ég sáði, því mér var afhennt verðlaun þetta kvöld... "Outstanding Acheavment In T.V. Studio"... Flutti ég þakkaræðu í beinni á netinu og sagði nokkur orð svo á íslensku fyrir fólkið heima...
Eftir þetta var svo partý á skólakránni... Það fengu allir sem unnu að sýningunni tvo fría drykkjar miða, en áður en allt byrjaði gaf sjónvarpskennari minn mér tvo í viðbót fyrir alla mína vinnu... Ég var að klára þá þegar hún kom og gaf mér tvo í viðbót... Svo kom annar kennari og gaf mér miða, og svo annar og annar... Endaði með því að ég var sá eini sem þurfti ekki að kaupa drykk allt kvöldið...
Svo heimtaði einn kennari minn að annar hækkaði einkun mína úr "A" yfir í "A+" en hann sagðist hvort sem er ætla að gera það án þess að hún hafi beðið um það...
Var þetta því fullkominn endir á langt og strangt skólaár...
Framundan er rífandi gott sumar og sæla... Sjáumst þar...
All sérlega slöpp ferðasaga... Það gékk nefnilega allt svona svakalega mjúkt og þægilega fyrir sig... Ég komst auðveldlega heimt til Íslands í fínum gír með engu brasi... Það er þá ekki að spyrja að auðvita að farangur minn komst ekki...
Held hann hafi valdið kviðsliti hjá of mörgum starfsmönnum... Töskurnar tvær verða opnaðar og innihaldinu dreyft og sent heim á næstu vikur til þess að minnka álagið á flugvélarnar... Þær hafa jú aðeins svo mikla lyftigetu...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?